Bjartsfélagar hafa það sameiginlegt að elska hjólreiðar og eru ekkert að taka sig of alvarlega
„Upphaf félagsins má rekja aftur til ársins 2008 þar sem Ólafur Baldursson sat við eldhúsborðið heima hjá foreldrum sínum og var að undirbúa sig fyrir hjólreiðakeppni frá Reykjavík til Akureyrar. Móðir Óla horfir á hann og segir „Óli minn, þú ert bjartur“. Óli stóð upp frá eldhúsborðinu og vissi strax að þarna var komið nafn á félagið sem hann ætlaði að skrá til keppni. Engar hetjusögur fara af þessari Akureyrarferð, en síðan þá hefur félagið safnað til sín öllum bestu hjólreiðamönnum landsins.
Íþróttafélagið var formlega stofnað 19. október 2011 og er Bjartur fyrsta hjólreiðafélagið í Hafnarfirði. Allir félagar hafa það sameiginlegt að elska hjólreiðar og eru ekkert að taka sig of alvarlega. Félagar í Bjarti hafa verið sýnilegir í öllum helstu hjólreiðakeppnum landsins.
Allir eru velkomnir í félagið sem geta hjólað.“
ÆFINGAR
Þjóta
Þriðjudaga kl 19:00, Pallett Strandgötu.
Njóta
Fimmtudaga kl 19:00, Pallett Strandgötu.
Langt
Sunnnudaga kl 09:00, Pallett Strandgötu.
Aukamennska
Auglýst sérstaklega.