Inniæfingar veturinn 2023-2024
Inniæfingarnar okkar fara fram í WorldClass og eru settar upp og leiddar af þjálfurum með margra ára reynslu af keppni og þjálfun.
Mánudagar kl. 19:00 - Tjarnarvellir
Miðvikudagar kl. 19:00 - Tjarnarvellir
Laugardagar kl. 11:15 - Tjarnarvellir
Útiæfingar sumarið 2023
Útiæfingarnar okkar hefjast þriðjudaginn 4. apríl og verður hjólað frá Pallett alla þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 19:00 og sunnudaga klukkan 9:00.
Þriðjudagar: 1-2 tímar - interval eða keyrslur
Æfingarnar eru gerðar á afmörkuðu svæði þannig að allir eru saman en gera á sínum forsendum og hraða. Í lokin er hjólað saman á Pallett og endað á spjalli og drykk fyrir þá sem vilja.
Fimmtudagar: 1-2 tímar - úthald z2, no-drop
Möguleiki á að skipta í tvo hópa eftir hraða og svo er komið saman á fyrirfram ákveðnum stað og hjólað saman á Pallett og endað á spjalli og drykk fyrir þá sem vilja.
Sunnudagar: +3 tímar - mezza með kaffistoppi
Lengri ferðir á höfuðuborgarsvæðinu eða þar í kring
Allir velkomnir