Sumaræfingar 2023
Langar þig að hjóla í góðum félagsskap í sumar og komast í frábært form?
Þá er tilvalið að skella sér á æfingar hjá okkur í Hjólreiðafélaginu Bjarti.
Við verðum með þrjár hjólaæfingar í viku ásamt 4 vikna götuhjólanámskeiði fyrir byrjendur og endurkomuhjólara sem eru að mæta aftur eftir langa fjarveru.
Almennar æfingar fara fram þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 19:00 og sunnudaga klukkan 9:00 og er stefnt að því að hafa þær getuskiptar.
Æfingar fyrir byrjendur og endurkomuhjólara hefjast mánudaginn 15. maí og standa í 4 vikur og fara æfingar fram á mánudögum og miðvikudögum klukkan 18:00. Verð 12.500 krónur.
Hjólað er frá Pallett.
Ekki hika við að senda okkur skilaboð ef þú hefur einhverjar spurningar á bjarturcc@gmail.com