Hjólreiðakona og hjólreiðamaður Bjarts 2023
Hjólreiðakona og hjólreiðamaður voru Bjarts voru útnefnd á árshátíð félagsins s.l. október og er þetta í annað sinn sem þetta er gert.
Hjólreiðakona Bjarts 2023 er Díana Björk Olsen. Díana keppti í B-flokki í götuhjólreiðum og criterium á keppnistímabilinu. Endaði hún í 3. sæti á bikarmótinu í götuhjólreiðum, í 4. sæti á bikarmótinu í criterium og í 6. sæti á Íslandsmótinu í criterium. Þá varð Díana í 2. sæti í 100 km. Greflinum.
Hjólreiðamaður Bjarts 2023 er Valur Rafn Valgeirsson. Valur keppti í B-flokki í götuhjólreiðum og criterium á keppnistímabilinu. Endaði hann í 2. sæti á bikarmótinu í criterium og í 5. sæti á Íslandsmótinu í criterium. Auk þess náði Valur fínum árangri í 100 km. keppni Grefilsins.
Bæði eru þau glæsilegar fyrirmyndir fyrir annað hjólreiðafólk og einstaklega skemmtileg.
Við óskum þeim innilega til hamingju